SUPPORT
Dontations
Videos
SJÁLFBOÐALIÐAR

Stefnt er að því að sjálfboðaliðar vinni við hjálparstarfið í minnst sex mánuði í senn. Undantekningar eru þó gerðar í sambandi við sjálfboðaliða sem koma til að kenna sérstök námskeið á fræðslumiðstöðinni.

Allt fjármagn Enza rennur beint til starfseminnar þess vegna þurfa sjálfboðaliðar að sjá alfarið um að koma sér á staðinn og halda sér uppi. Enza verður sjálfboðaliðum innan handar með að finna húsnæði og koma sér fyrir.

Þeir sem óska eftir að gerast sjálfboðaliðar sendi tölvupóst á enza@enza.is. Fram þarf að koma menntun, starfsreynsla, aldur, áhugasvið og 500 orða ritgerð um hvað viðkomandi hefur fram að færa. Óskað er eftir meðmælendum.

Norsku samstarfsaðilarnir NorSa hafa fengið sjálfboðaliða til uppbyggingar á svæðinu. Meðal þeirra eru hin hollensku Eric og Saskia. Þau ákváðu að gerast sjálfboðaliðar í Suður-Afríku í eitt ár og gefa þannig til baka til samfélagsins sem tvö ættleidd börn þeirra koma frá. Þau söfnuðu peningum, fatnaði og ýmsum vörum sem gætu komið að notum og fóru til Suður-Afríku ásamt börnunum tveimur og foreldrum Söskiu.

Á meðan dvöl þeirra stóð hjálpluðu þau íbúum fátækrahverfanna á ýmsan hátt. Mennirnir hjálpuðu til við að laga og byggja ný þök á híbýli fólksins og þétta veggi. Á meðan dreifðu konurnar fatnaði og teppum til heimilanna og útveguðu húsgögn og annað sem skorti.

Þau segja að reynslan af þessum tíma sé ómetanleg. Að kynnast þeim hrikalegu aðstæðum sem fólkið búi við hafi snert þau mjög, en einnig að kynnast gleði íbúanna og jákvæðni. Tíminn í Suður-Afríku hafi verið þeim ómetanleg lífsreynsla.