Til að starfsemi Enza komist í fullan gang er þörf á fjárstuðningi. Auður Capital hefur styrkt Enza fyrir húsnæði undir Enza-skólann. Nú þurfum við að safna fyrir byggingu tímabundins heimilis fyrir stúlkurnar, rekstri þess og rekstri skólans. Þegar fram líða stundir mun skólinn og heimilið verða sjálfbær, en enn eru nokkur ár í það. Nánari upplýsingar um þennan lið starfseminnar er að finna hér.
Með mánaðarlegu framlagi leggur þú þitt af mörkum til að búa stúlkunum bjartari framtíð og forða þeim frá ömurlegum örlögum. Hægt er að skrá sig hjá Valitor með því að smella á hnappinn:

Ég vil styðja Enza mánaðarlega með framlagi
250 kr - 500 kr - 750 kr - 1000 kr - frjálst framlag
Til að styrkja Enza um einstakt framlag er hægt að leggja inn á bankareikning
1135-26-014700 kt. 521208-0150
Kynning á starfseminni
Við mælum með að hópar sem hafa áhuga á að styðja við starfsemi Enza með því að leggja til fjármagn fái kynningu á verkefninu. Fulltrúar Enza kynna starfið, sýna myndskeið og svara spurningum um verkefnið sem kunna að vakna. Í kjölfarið getur hópurinn safnað fyrir hlut, eða hlutum, sem renna beint til starfsemi fræðslumiðstöðvarinnar eða heimilisins. Þannig er hægt að fá innsýn inn í annan heim og láta gott af sér leiða á sama tíma.
Dæmi um hluti sem hægt er að safna fyrir:
* stólum í eina kennslustofu 12.000
* töflu 6.000
* skjávarpa 40.000
* borðum - eitt borð kostar 2.000
* ljósum í eina kennslustofu - 5.000
* gardínum í eina kennslustofu - 2.500
* tölvu - 90.000
* saumavél 20.000
* eldhúsáhöld - hnífapör 2.700, glös 1.900, kaffivél 4.500, diskar 2.500
* þvottavél 50.000