|
|
|
|
| SAMSTARFSAÐILAR | Samstarfsaðilar verkefnisins eru hjálparstofnanirnar ProCare og NorSa. ProCare eru suður-afrísk hjálparsamtök sem sérhæfa sig í aðstoð við vanfærar stúlkur og konur. Norsa eru norsk/suður-afrísk hjálparsamtök í náinni samvinnu við ProCare og vinna við barnahjálp í hverfinu.
Samtökin hafa fest sig í sessi í fátækrahverfunum og öðlast virðingu og traust. Það er afar mikilvægt þar sem trú innfæddra á hjálparsamtök er ekki mikil. Reynslan hefur kennt þeim að þau koma gjarnan með of háleitar hugmyndir um hvernig hægt er að hjálpa. Þau gefast svo upp og hverfa á brott þegar árangur næst ekki. ProCare og NorSa mæta fólkinu hins vegar þar sem það er statt og hjálpa því þaðan.
Cluster NorSa styðst við eigin tenglsamyndunarkerfi sem gengur undir nafninu Cluster og hefur meðal annars verið tekið upp hjá viðurkenndum hjálparstofnunum í Bandaríkjunum. Um 10 konur úr fátækrahverfinu eru þjálfaðar til að vera Cluster-mömmur. Þær fara um hverfið og finna konur sem þurfa hjálp. Þannig ná þær til fjölskyldna sem utanaðkomandi aðilar ættu mun erfiðara að ná til. Fjölskyldurnar fá svo matarpakka einu sinni í mánuði og vikulega heimsókn frá fulltrúa samtakanna.
Markmiðið með þessu verkefni er að hjálpa konum Mbekweni að hjálpa sér sjálfar að finna til ábyrgðar og að ná tökum á eigin lífi. Þannig geta þær séð sjálfum sér farborða, miðlað öllu samfélaginu af reynslu sinni og orðið fyrirmyndir annarra kvenna. |
|
|
|
|
|