|
|
|
|
| Verkefnið | Markmið verkefnisins er að flytja út styrkleika hinnar sjálfstæðu íslensku konu. Þannig er ætlunin að íslenskar konur muni miðla af þekkingu sinni og reynslu sem sjálfboðaliðar.
Nú þegar hefur farið fram vinna með reyndum félagsfræðingum á svæðinu og búið er að kaupa hús undir fræðslumiðstöð í Mbekweni fátækrahverfinu skammt frá Höfðaborg.
Staðsetningin er afar mikilvæg því konurnar hafa ekki fjárráð og hafa því ekki tök á að ferðast nema fótgangandi.
Skjól Annað húsið verður byggt og verður það skjól fyrir konur sem eru á götunni og hafa sökum fátæktar neyðst til að gefa frá sér barn til ættleiðingar. Konurnar munu eiga kost á að dvelja á heimilinu í 6-9 mánuði. Á þeim tíma fá þær faglega hjálp og ráðgjöf til að byggja sig upp og öðlast sjálfstraust til að takast á við lífið á ný. Áhersla verður lögð á að virkja samhjálp og samkennd meðal kvennanna og koma á systraneti. Árangurstengd eftirfylgni verður með hverri konu sem býr á heimilinu.
Í húsinu verður líka starfrækt kvennaathvarf þar sem tekið verður á móti konum úr hverfinu sem orðið hafa fyrir kynbundnu ofbeldi.
Enza-skólinn Ýmis konar námskeið verða starfrækt í Enza-skólanum til uppbyggingar fyrir stúlkurnar og aðrar konur í fátækrahverfinu. Stefnt er að því að kennslan verði hagnýt og nýtist konunum út í atvinnulífið. Kennsla í almennu hreinlæti, tölvunotkun og handavinnu er meðal þess sem verður í boði. Fram til þessa hafa tölvu- og lífsleikninámskeið verið kennd við góðan árangur og skilað nokkrum stúlknanna vinnu.
Matargjöf Frá miðstöðinni verður matargjöf fyrir íbúa hverfisins veitt daglega. Hún er í formi matarmikillar súpu og brauðs sem konurnar útbúa sjálfar. Matargjöfin er afar mikilvæg fyrir fólkið því í mörgum tilfellum er um að ræða nánast einu almennilegu fæðuna sem margir íbúanna fá. Uppfylling þessarar grunnþarfar er skilyrði þess að fólk geti einbeitt sér að öðru en að hugsa um hvaðan næsta máltíð eigi að koma.
|
|
|
|
|
|