SUPPORT
Dontations
Videos
FÁTÆKRAHVERFIN

Milljónir Suður-Afríkumanna búa í fátækrahverfum í svo slæmum húsakosti að ekki eru hliðstæður hans á Íslandi. Í mörgum hreysanna er hvorki að hafa rafmagn né vatn og fólk þarf að ganga langar leiðir til að ná í vatn í næsta krana. Samkvæmt fréttum BBC er markmið stjórnvalda að útrýma fátækrahverfum fyrir árið 2014. Þrátt fyrir það hefur íbúum fátækrahverfanna fjölgað umtalsvert frá því að aðskilnaðarstefnan leið endanlega undir lok árið 1994. Flestir íbúar fátækrahverfanna eru litaðir og svartir, en hvítir eru í auknum mæli að bætast í hóp fátækra í landinu.

Lífsbaráttan er hörð í fátækrahverfunum, og þrátt fyrir að Suður-Afríka sé efnahagslega fremst í flokki annarra Afríkuríkja, er fátækt landlægt vandamál.

Þegar hungur sverfur að er eina hugsun fólks að finna út hvar það getur fengið næstu máltíð. Þess vegna er svo mikilvægt að útvega íbúum í nágrenninu fæði, eins og Enza mun gera, því þannig er hægt að virkja fólkið til að skapa sér betri framtíð.

Konurnar eru máttarstólpar þessara samfélaga. Það eru þær sem sjá um að fæða og klæða heimilismeðlimi. Nánar um stöðu kvenna í fátækrahverfunum hér. Auk þess er að finna myndskeið af verkefninu hér.