SUPPORT
Dontations
Videos
UM ENZA

Enza eru íslensk hjálparsamtök sem miða að því að hjálpa stúlkum og konum sem verða barnshafandi en þurfa að gefa frá sér barn sitt vegna fátæktar og/eða útskúfunar. Starfsemin fer fram í Mbekweni fátækrahverfinu í Suður-Afríku. Í mörgum tilfellum hefur þeim verið útskúfað úr samfélögunum sem þær búa í, eða þá að þær flýja án þess að fólk viti af ástandi þeirra og ákveða að gefa barnið. Þannig geta þær snúið aftur og haldið lífi sínu áfram eins og ekkert hafi í skorist. Séu þær hins vegar útskúfaðar eiga þær fáa kosti aðra en að skapa sér nýtt líf.

Einstæðar mæður eru litnar hornauga í fátækrahverfunum. Þar eru nauðganir líka mjög algengar, en Suður-Afríka er það land þar sem flestar nauðganir eiga sér stað í heiminum. Stúlku eða konu er nauðgað í landinu á 27 sekúndna fresti. Verði stúlkan barnshafandi er hún yfirleitt sjálf gerð ábyrg fyrir nauðguninni og gjarnan útskúfuð í kjölfarið, sé hún ekki gift.

Á meðan stúlkurnar eru barnshafandi geta þær fengið húsaskjól hjá hjálparsamtökunum ProCare, sem eru í nánu samstarfi við Enza. Þar fá þær ráðgjöf og fræðslu sem hjálpar þeim að taka endanlega ákvörðun um framtíð barnsins. Yfirleitt ákveða þær að gefa það frá sér til ættleiðingar vegna sárrar fátæktar og útskúfunar. Eftir fæðingu og undirskrift pappíra, hafa þær hins vegar tveggja mánaða umhugsunarfrest og geta þá hætt við. Það heyrir til undantekninga að móðir skipti um skoðun eftir þessa ákvörðun, enda hefur fagleg ráðgjöf hjálpað henni að takast á við aðstæðurnar. Þegar barnið er fætt, geta stúlkurnar hins vegar ekki fengið að vera lengur inni á heimilinu.

Á þessum tímapunkti mun Enza taka við stúlkunum og veita þeim tímabundið húsaskjól, fræðslu og þekkingu til að hjálpa þeim að komast yfir í þau tækifæri sem eru til staðar á svæðinu. Nú þegar hefur tölvukennsla hafist og miðar tölvusöfnunin að því að sem flestar tölvur séu tiltækar fyrir stúlkurnar þegar heimilið og fræðslumiðstöðin opnar, sem mun taka við stúlkum frá nokkrum heimilum og veita þeim fjölþætta aðstoð og fræðslu. Fræðslumiðstöðin verður einnig opin öðrum konum úr fátækrahverfunum.

Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna hér.

Orðið Enza er úr Zulu tungumálinu. Það hefur jákvæða skírskotun og þýðir að gera eða að framkvæma.