SUPPORT
Dontations
Videos
15.06.2010
Velgjörðarmenn víða um heim

Auk þess að safna fé á Íslandi, hefur rödd Enza fengið góðan hljómgrunn erlendis, og hafa samtökin nú þegar eignast fjölda velgjörðarmanna viða um heim sem hafa lagt þeim lið með fjármagni.  Meðal þeirra má  nefna félag afrískra kvenna í Singapúr sem kallar sig „The Africa Society“ . Formaður þess félags er frá Suður- Afríku og heitir Lisa Livingstone. Lisa varð afar snortin efir að hún kynntist starfsemi ENZA á síðasta ári og hafði í kjölfarið milligöngu um veglegan styrk til samtakanna. Hægra megin á myndinni má sjá Lísu þegar hún sótti ENZA heim í desember á síðasta ári. Hin konan á myndinni er frá Svíþjóð og heitir Suzanne Bolinder,hún einnig mikill hollvinur ENZA.

Til baka