SUPPORT
Dontations
Videos
15.06.2010
Þáttaskil hjá ENZA

Í þessari viku urðu þáttaskil hjá ENZA, þegar hafist var handa við viðbygginguna. Í þessu húsi verður fræðslumiðstöð ENZA starfrækt, auk þess sem þar verður tímabundið heimili fyrir skjólstæðinga okkar á meðan þær eru að fóta sig eftir barnsburðin.

Arkitekt hússins er Selma Latham, hún er mikill reynslubolti í faginu, hefur starfað sjálfstætt í 35 ár og hefur unnið bæði í Bretlandi og í Suður-Afríku.  Selma hefur hannað allt frá heimilum, til stórra stofnanabygginga, auk skrifstofubygginga og hótela.  Á myndunum sést Selma, sem gefur alla sína vinnu til ENZA, velta fyrir sér staðháttum og munda málbandið á á hönnunarferlinu.

Til baka