|
|
|
|
03.04.2010 Ný stjórn stofnuð í Suður-Afríku |
Stofnuð hefur verið önnur stjórn Enza samtakanna sem starfrækt er í Suður-Afríku. Stjórninni er ætlað að vera framkvæmdastjórn og mun fylgja starfi Enza eftir á staðnum. Til að Enza geti tekið á móti styrkjum í Suður-Afríku og stundað rekstur þarf félagið að vera skráð sem góðgerðarfélag, eða NGO, í Suður-Afríku.
Enza á Íslandi verður áfram móðurfélag Enza og mun beita sér frekar að fjáröflun.
Nýja stjórnin er skipuð sjö manns úr ýmsum hópum samfélagsins. Ruth Gylfadóttir er stjórnarformaður beggja stjórna. |
| Til baka |
|
|
|
|
|