|
|
|
|
09.06.2010 Framkvæmdir hafnar |
Framkvæmdir hófust í dag við viðbyggingu á húsi Enza í Mbekweni. Með henni kemst húsnæðið í það horf sem hentar starfseminni. Þar verða bæði herbergi fyrir Enza stúlkurnar sem þurfa tímabundið á samastað að halda sem og kennsluaðstaða.
Eigendur múrsteinaverksmiðju skammt frá fátækrahverfinu, hafa ákveðið að gefa Enza þá 30 þúsund múrsteina sem þarf fyrir stækkun hússins.
Áætlað er að framkvæmdum verði lokið fyrir haustið. |
| Til baka |
|
|
|
|
|