SUPPORT
Dontations
Videos
16.12.2009
Góðgerðartónleikar í Jólaþorpinu 21. desember

Góðgerðartónleikar til styrktar fimm hjálparsamtökum verða haldnir í Jólaþorpinu í Hafnarfirði næstkomandi mánudagskvöld. Um verður að ræða símasöfnun fyrir Enza, Mæðrastyrksnefndir, Rauða krossinn, Stígamót og ABC barnahjálp. Hægt er að hringja í síma 900-1000, 900-2000 eða 900-3000, og gefa þannig 1.000, 2.000 eða 3.000 krónur.

Tónleikarnir verða sendir út beint í Íslandi í dag á Stöð 2 frá klukkan 18:55-19:25. 

Fjöldi tónlistarmanna kemur fram á tónleikunum og má þar nefna Stefán Hilmarsson, Siggu Beinteins, Egil Ólafsson, Regínu Ósk, Greifana, Ellen Kristjánsdóttur, Ragga Bjarna, Alan Jones og Tríó Vadim Fyodorov.

Edda Björgvinsdóttir, leikkona, verður kynnir tónleikanna.

Aðgangur er ókeypis og við í Enza hvetjum alla til að mæta í Hafnarfjörðinn og komast í enn meira jólaskap við að hlusta á frábært tónlistarfólk.

Rio Tinto Alcan er sérstakur stuðningsaðili tónleikanna.

Til baka