SUPPORT
Dontations
Videos
15.12.2009
Konu nauðgað á 17 sekúndna fresti

Hvergi í heiminum eru nauðganir fleiri en í Suður-Afríku þar sem konu er nauðgað á 17 sekúndna fresti. Þetta eru niðurstöður nýlegrar könnunar Gallup International sem styður við tölur alþjóðalögreglunnar Interpol um nauðganir í landinu. Könnunin leiðir í ljós að önnur hver kona í Suður-Afríku á von á því að verða nauðgað og tæplega helmingur fórnarlambanna eru stúlkur undir 18 ára aldri.

Það eru jafnt konur sem karlar, borgarbúar og fólk til sveita, sem telur nauðganir vera mikið vandamál í landinu samkvæmt könnuninni.

Einn af hverjum fjórum karlmönnum sem tóku þátt viðurkenndu að hafa nauðgað einhverjum, og helmingur þeirra að þeir hefðu nauðgað fleiri en einu fórnarlambi.

Í sumum samfélagshópum er litið á hópnauðganir sem hluta af betri tengslum í karlahópum. – nokkurs konar leið til að sanna manndóm sinn.

Þá er það landlæg trú meðal karlmanna í fátækrahverfum að þeir læknist af HIV veirunni, eða eyðni, ef þeir nauðgi óspjallaðri stúlku. Barnungar stúlkur eru þannig í sérstökum áhættuhópi fyrir nauðganir.

Afleiðingar aðskilnaðarstefnunnar

Rannsóknir leiða í ljós að saga landsins hafi að öllum líkindum áhrif á þessa háu nauðgunartíðni. Þegar aðskilnaðarstefnan var við líði var ofbeldi notað sem stjórntæki og varð bæði almennara og viðurkenndara í landinu. Reiðir og niðurlægðir karlmenn fengu útrás fyrir kúgunina – og gera enn - á veikasta hópnum, konum og börnum. Viðhorf karla til kvenna eru líka hluti af vandanum en konur eiga langt í land með að ná jafnrétti í landinu.

Núverandi forseti Suður-Afríku, Jakob Zuma, var ákærður árið 2006 fyrir að nauðga konu sem var fjölskylduvinur. Þrátt fyrir sýknudóm er talið að réttarhöldin hafi skaðað stórlega tilraunir til að breyta viðhorfum til ofbeldis gagnvart konum í landinu.

Til baka