|
|
|
|
15.12.2009 Úlfur, Uggi og Skuggi styðja Enza |
Sagan um Úlf, Ugga og Skugga í ævintýraferð eftir Skúla Bjarnason er nú seld í bókabúðum víða um land. Fram til loka febrúar munu höfundar bókarinnar láta 100 krónur af hverri seldri bók renna til Enza. Bókin er myndskreytt af Sigríði Lillý Baldursdóttur og er afar vel úr garði gerð.
Úlfur, Uggi og Skuggi í ævintýraferð er hugarfóstur Skúla og Sigríðar en sagan er ein margra sem þau hjónin hafa sagt barnabörnum sínum í gegnum tíðina. Bókin hefur fengið afar góða dóma, meðal annars í Vikunni og fjallað hefur verið um útgáfu hennar bæði í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu.
Það er Málstaður ehf. sem gefur bókina út.
Stjórn Enza er afar þakklát fyrir stuðninginn og hvetur alla sem vilja gefa vandaða og skemmtilega barnabók í jólagjöf, að kaupa hana í næstu stóru bókabúð, Krónubúðunum eða hjá Hagkaupum.

|
| Til baka |
|
|
|
|
|